top of page

Veiðihús

Afnot af veiðihúsinu Gljúfurholti fylgja með veiðileyfum. Húsið stendur á austurbakka árinnar um 2 km, neðan þjóðvegar.


​Húsið er rúmgott og vel búið. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu, tvö tveggja manna og eitt eins manns. Eitt sameiginlegt baðherbergi. Húsið er hitað með hitaveitu og heitur pottur er við húsið. Ljósleiðari hefur verið lagður í húsið og frítt WiFi fylgir með afnotum af húsinu. Öll hefðbundin eldhúsáhöld, grill, sængur og koddar fyrir 5 manns, eru til staðar. 

Gert er ráð fyrir að gestir þrífi eftir sig sjálfir og komi með rúmfatnað og handklæði. Ræstivörur eru til staðar í húsinu.

Athugið að ekki er leyfilegt að vera með hunda eða önnur gæludýr í veiðihúsinu nema að fengnu leyfi og lausaganga hunda án eftirlits við ána er bönnuð.

glj-furholt_orig.jpg
gljufurholt eldhus.jpg
gljufurholt svenherb.jpg
bottom of page