top of page

Verslun í sveitinni

Á Hólabaki er starfrækt fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu hágæða vefnaðar- og gjafavara. Vörur fyrirtækisins eru seldar undir vörumerkjunum LAGÐUR og TUNDRA. Í lagerhúsnæði fyrirtækisins er rekin verslun þar sem hægt er að kynna sér starfsemina og skoða og kaupa allar vörur fyrirtækisins. Þar eru einnig haldnir markaðir/viðburðir nokkrum sinnum á ári.

Opnunartímar 2026:

  • ​​16. júní - 31. ágúst. Opið alla daga kl. 12-17

  • 1. sept. - 27. nóv. Enginn fastur opnunartími, en opið eftir samkomulagi

  • 28. nóv. - 31. des. Fastir opnunardagar, nánar tilkynnt síðar

Í versluninni er boðið upp á fjölbreyttan varning, m.a. púðaver, sængurfatnað, svuntur, kerti, ýmsa nytjahluti fyrir eldhúsið, skrautmuni o.fl. Margar af vörunum eru aðeins framleiddar í litlu upplagi og eru aðeins til sölu 'beint frá býli'. Einnig bjóðum við sérvaldar vörur frá öðrum framleiðendum að ógleymdu handverki og prjónavörum úr héraði.

Heimsóknir hópa
Við tökum glöð á móti hópum og getum boðið upp á stutta kynningu á starfsemi okkar og lífi og starfi á bænum. Frekari upplýsingar um útfærslu hópaheimsókna og bókanir má nálgast í síma 893 0120 eða með tölvupósti á info@tundra.is.

VEFVERSLUNIN OKKAR

WWW.TUNDRA.IS

OPNUNARTÍMI ER BREYTILEGUR EFTIR ÁRSTÍMUM

​

FASTUR OPNUNARTÍMI YFIR SUMARIÐ

​

Á VETRARTÍMA ER OPIÐ EFTIR SAMKOMULAGI

Hvernig líst viðskiptavinum okkar á þessa búð?

Keep your eyes open for a sign on the road that says gift shop ahead. This little shop is run by a farm family out of a small building on their property. They have a lovely variety of locally produced goods including yarn! If you like to #shoplocal this is a must!

Great staff and a wonderfull shop.
So ein schöner Laden mit liebevollen Kleinigkeiten und Kissenbezügen! Die Besitzerin war so freundlich und hilfsbereit! Ich habe ein wunderschönes Kissen gekauft!
bottom of page